
Fyrir Börnin
Börn eru dýrmætustu farþegar Icelandair. Þess vegna leggjum við þunga áherslu á að hugsa vel fyrir þörfum barna og skapa í kringum þau hlýlegt andrúmsloft þar sem þau finna til öryggis á meðan á flugferðinni stendur. Börnin fá mat í öllu áætlunarflugi Icelandair. Þau fá einnig smáhluti til að leika sér með, t.d. litabók og liti, og í afþreyingarkerfinu, á sérstökum skjá fyrir framan hvert sæti, er fjölbreytt úrval barnamynda og annars skemmtiefnis fyrir börn.