
Meira Icelandair þýðir meiri þjónusta
Miklar breytingar á umhverfi farþega Icelandair, sem meðal annars fela í sér miera pláss, þægilegri sæti og afþreyingarkerfi fyrir hvern farþega. Við viljum einnig undirstrika uppruna okkar, sýna stolt okkar yfir íslenskri náttúru, sögu og því besta sem einkennir þjóðina: gestrisnina. Takmarkið er að koma til móts við þarfir og óskir viðskiptavina okkar og auk þess skapa Icelandair meiri sérstöðu. Síðast en ekki síst viljum við vekja áhuga á Íslandi hjá þeim fjölmörgu gestum Icelandair sem eru ekki á leiðinni til Íslands heldur fljúga milli Evrópu og Ameríku.
Smelltu á krækjurnar hér að ofan og kynntu þér breytingarnar um borð.
