Economy Comfort

Economy Comfort er nýr fargjaldaflokkur hjá Icelandair þar sem viðskiptavinum gefst kostur á mun þægilegri vinnuaðstöðu um borð á hagstæðu verði en án þess að þurfa að greiða fyrir sérstakan munað á Saga Class

Á farrýminu Economy Comfort eru fjögur sæti í röð, tvö sæti sín hvorum megin við gang, og meira rými fyrir fætur.

Máltíð er innifalin í fargjaldi ásamt óáfengum drykkjum, léttvíni og bjór.

Efni á afþreyingarkerfinu um borð er án endurgjalds.

Innritun á Economy Comfort er við innritunarborð fyrir Business Class (Saga Class) og gestir á Economy Comfort hafa aðgang að betri stofum Icelandair hér heima og erlendis.
 
  • Einstaklega vönduð og góð sæti
  • 4 stillanleg sæti í hverri röð
  • Stærra sætabil - 83,8 cm.
  • Afþreyingarkerfi án endurgjalds.
  • Ókeypis máltíð og gosdrykkir.
  • Ókeypis vín og bjór. Sterkir drykkir gegn gjaldi.
  • Innritun á borðum fyrir viðskiptafarrými.
  • Aðgangur að betri stofum.
  • Pappírsmál.
  • 4 til 26 sæti í farrými.
  • Ókeypis dagblöð.
  • Matarbakki.
  • Volgt brauð.
  • Ókeypis teppi og koddar.
  • Ókeypis hlustunartól.
  • Rafmagnstenglar.
  • Í Ameríkuflugi: Vatnsflöskur þegar gengið er um borð.